Um sýninguna

 

Stórviðburður á sviði myndlistar

á Listahátíð í Reykjavík 2012

Listahátíð í Reykjavík kynnir „Sjálfstætt fólk“, (I)ndependent People, viðamikið og metnaðarfullt alþjóðlegt myndlistarverkefni  sem leggur undir sig mikinn fjölda sýningarrýma, sýningarsala, safna og opinbera staði í Reykjavík og víðar á Listahátíð og fram eftir sumri. Í verkefninu „Sjálfstætt  fólk“ er lögð áhersla á samtímamyndlist frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Í þessu yfirgripsmikla verkefni taka þátt 29 samstarfshópar listamanna sem samtals telja yfir 100 þátttakendur sem allir eru virkir í gamalgrónum eða nýjum samstarfsverkefnum. Í hópunum eru listamenn frá Íslandi og öllum Norðurlöndunum, Litháen, Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og víðar.

Lykilstef sýninganna er jafnvægislistin sem felst í því að standa mitt á milli ráðandi valdakerfa, í því að gera opinbera samninga, innleiða viðmið og veita svigrúm fyrir breytingar. Meðan á sýningunum stendur verður nokkrum mismunandi verkefnum fylgt úr hlaði, þótt endaleg útkoma þeirra sé enn óljós. Með því að setja sjálfið í sviga og falla frá tilkalli til höfundarréttar á afmörkuðu, listrænu viðfangsefni, myndast óvissa sem er sértæk í eðli sínu, og það verður mögulegt að skapa aðra sjálfsmynd. Á svæðinu sem verður til í miðju slíkrar samvinnu geta átt sér stað félagslegar og menningarlegar breytingar. Á Listahátíð í Reykjavík er ætlunin að að skapa slíkt svæði og það verður vettvangur fyrir nýjar hugmyndir sem enn á eftir að kanna og þróa. Með þessu verkefni á Listahátíð í vor gefst færi á að rannsaka huglægni sjálfs listamannsins og kröfu hans til höfundarréttar á verkum sínum, og varpa fram þeirri spurningu hvort, og þá hvernig, samstarf geti farið fram og hvort endurtekin samskipti þar sem andstæðar hugmyndir og langanir eru til staðar, geti skapað svigrúm fyrir ófyrirséðar og byltingarkenndar uppákomur.

Sýningin verður að veruleika í krafti víðtæks samstarfs fjölda safna, sýningarsala, stofnana og listamannarekinna sýningarrýma. Meðal sýningarstaða sem sýningarnar verða á eru Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Norræna húsið, Kling & Bang, Nýlistasafnið, SÍM og Listasafn ASÍ auk fjölda óhefðbundinna rýma og almenningsrýma í Reykjavík.

Sýningarnar opna allar laugardaginn 19. maí og fjöldi viðburða verður á dagskrá frá morgni til kvölds á sýningarstöðunum.  Sunnudaginn 20. maí verður svo haldið alþjóðlegt málþing í Norræna húsinu með þátttöku lista- og fræðimanna. Til að halda utan um gríðarlegt umfang verkefnisins hefur verið opnuð vefsíða, www.independentpeople.is  með öllum upplýsingum um sýningar og listamenn, og þar munu þátttakendur verkefnisins setja inn textafærslur, ljósmyndir og fleira eftir því sem verkefninu vindur fram.

Sýningarstjóri: Jonatan Habib Engqvist
Verkefnisstjóri: Kristín Scheving